Leiðarljós Minjasafns Reykjavíkur

Minjasafn Reykjavíkur safnar, varðveitir og rannsakar menningarminjar í Reykjavík og miðlar þekkingu um sögu og lífskjör íbúanna frá upphafi byggðar til nútímans. Starf safnsins miðar að því að glæða áhuga, skilning og virðingu fyrir sögu höfuðborgarinnar og að tryggja að allir hafi aðgang að menningararfi hennar.



Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Kvoldvaka_safnanott

Safnanótt - 10. febrúar | 07.02.2012

Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.

Skoða alla viðburði