Forsíðumynd Opnunar tími ÁrbæjarsafnsOpnunar tími Landnámssýningar

Viðburðir


Kvoldvaka_safnanott

Safnanótt - 10. febrúar | 07.02.2012

Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.

Skoða alla viðburði

Minjasafn Reykjavíkur

Minjasafn Reykjavíkur sinnir rannsóknum á sögu borgarinnar og minjavörslu sem felur í sér umsjón og eftirlit með menningarminjum í landi Reykjavíkur, svo sem skráningu og eftirliti fornleifa og gamalla bygginga.

Sjá nánar

Fréttir & tilkynningar


Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

Húsverndarstofan á Árbæjarsafni verður lokuð dagana 21. desember og 28. desember. Hún verður svo á sínum stað eftir áramót. Húsaverndarstofan vill þakka öllum sem hafa komið í heimsókn á liðnu ári.