Bráðum koma blessuð jólin ...

jolasyningJólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Ungir sem aldnir geta rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra, syngja jólalög og ferðast um í hestvagni.


• Klukkan 14:00 verður guðsþjónusta í safnkirkjunni. Prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson og organisti er Sigrún Steingrímsdóttir.
• Klukkan 15:00 hefst jólatrésskemmtun á torginu. Þar verða sungin jólalög og dansað í kringum jólatréð.
• Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið á milli 14:00 og 16:00, hrekkjóttir og stríðnir að vanda og taka þátt í dansinum kringum jólatréð.                 
                                                                                  
Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður spunnið og prjónað. Þar verður jólatré einnig vafið lyngi. Í Lækjargötu 4 fá börn og fullorðnir að föndra, búa til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Kornhúsinu verður jólamarkaður á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands. Í Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti en í stofunni er sýndur útskurður. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í krambúðinni verður til sölu ýmis jólavarningur, kramarhús og konfekt. Dillonshús býður upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti.

 

Jólasýning


Sem fyrr segir er sýningin opin sunnudagana 4., 11. og 18. desember kl. 13:00-17:00.
Aðgangseyrir er kr. 1000 fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja. Menningarkortið (blátt og grænt) veitir frían aðgang að safninu.


Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Benediktsson í síma 411 6304, netfang minjasafn@reykjavik.is.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook