Húsvernd í Reykjavík

Minjasafn Reykjavíkur sinnir húsvernd á margvíslegan hátt. Í Árbæjarsafni eru varðveitt hús sem talin eru hafa sögulegt og listrænt gildi. Safnið sinnir rannsóknum á byggingararfi í borginni og heldur húsaskrá Reykjavíkur þar sem er að finna upplýsingar um hús í Reykjavík. Niðurstöður rannsóknanna eru birtar í ritum um byggingarsögu og húsakönnunum sem gefnar eru út í skýrsluröð safnsins. Borgarminjavörður veitir umsagnir um breytingar og niðurrif eldri húsa sem sótt er um leyfi fyrir til byggingarfulltrúans í Reykjavík.

Húsaskrá

Húsaskrá Reykjavíkur er gagnagrunnur um hús í Reykjavík. Megintilgangurinn með skránni er að safna á einn stað upplýsingum um hús í Reykjavík og varpa ljósi á byggingararf borgarinnar. Húsaskráin er lögð til grundvallar við gerð húsakannana.

Nánari upplýsingar um húsaskrá

Húsakannanir

Minjasafnið sinnir rannsóknum á byggingarsögu Reykjavíkur og gerir úttektir á einstökum húsum og afmörkuðum hlutum borgarinnar sem birtar eru í húsakönnunum. Samkvæmt skipulagslögum skal gera húsakönnun þegar unnið er deiliskipulag í þegar byggðu hverfi og skal könnunin höfð til hliðsjónar við gerð þess. Í húsakönnunum er gerð grein fyrir sögu húsa á viðkomandi svæði og lagt mat á varðveislugildi einstakra húsa og byggðar. Tilgangur þeirra er að tryggja að ákvarðanir sem varða breytingar á byggð eða einstökum húsum séu teknar af þekkingu á því gildi sem þau hafa fyrir umhverfi, sögu og byggingarlist.

Húsakannanir Minjasafns Reykjavíkur eru aðgengilegar á rafrænu formi á vef safnsins en einnig er hægt að kaupa eintök á skrifstofu safnsins.

Skoða húsakannanir

Húsverndarstefna Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur markað stefnu um verndun húsa í borginni sem birtist í þemaheftinu Húsvernd í Reykjavík sem er fylgirit Aðalskipulags Reykjavíkur 1996-2016. Þar er mörkuð stefna um verndun byggðar í eldri hverfum borgarinnar. Út frá aldri og varðveislugildi eru skilgreindir mismunandi verndunarflokkar sem hver hefur sinn lit á húsverndarkorti. 

Skoða húsverndarkort

Lög og reglugerðir varðandi húsvernd

Í eftirtöldum lögum er að finna ákvæði sem snúa að verndun húsa og byggðar:

Skipulags- og byggingarlög 1997 nr. 73 (sjá t.d. ákvæði um hverfisvernd í I. kafla, 2. gr og III. kafla, 9. gr., ákvæði um húsakannanir í III. kafla, 23. grein og ákvæði um niðurrif og breytingar á eldri húsum í IV. kafla, 43. grein).

Lög um húsafriðun 2001 nr. 104.

Þjóðminjalög 2001 nr. 107 (sjá t.d. II. kafla, 5. gr.). Samkvæmt lögum og verklagsreglum heyrir minjavarsla undir borgarminjavörð, skipulagsvinna er á hendi skipulagsstjóra og byggingarfulltrúi á að framfylgja ákvæðum um tilkynningarskyldu vegna húsa sem byggð eru fyrir árið 1918.

Húsverndarsjóður Reykjavíkur

Húsverndarsjóður Reykjavíkur veitir styrki til endurgerðar eða viðgerða á húsum eða öðrum mannvirkjum sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og í samræmi við sjónarmið minjavörslu.

Í janúar hvert ár er auglýst eftir umsóknum í sjóðinn. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á rafrænu formi á vef Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur. Þeim skal skila, vandlega útfylltum, innan tilskilins frests til Skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 12-14, 104 Reykjavík.

Skoða reglur Húsverndarsjóðs (PDF, 15,6 KB)

Húsverndarstofa og sýning um byggingartækni

Í Kjöthúsi á Árbæjarsafni er starfrækt Húsverndarstofa þar sem veitt er ráðgjöf um viðgerðir og viðhald eldri húsa. Ráðgjöf er á Árbæjarsafni alla miðvikudaga frá kl. 16-18 og einnig á sama tíma í síma 411 6333

Skoða nánar Húsverndarstofu

Í Kjöthúsi á Árbæjarsafni er sýningin Húsagerð höfuðstaðar 1840–1940 – Saga byggingartækninnar. Þar er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni í Reykjavík á tímabilinu 1840–1940.

Skoða nánar Húsagerð höfuðstaðar 1840-1940




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Teikning eftir Þorstein Gunnarsson arkitekt.

Skúli Magnússon og Viðey - 12. maí 2012 | 09.05.2012

Þann 12. desember síðastliðinn voru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni er við hæfi að bregða upp svipmyndum af Skúla, verkum hans og samtíð, í því húsi sem hann lét reisa sem embættisbústað og flutti inn í með fjölskyldu sinni haustið 1755.


Stúlka og lamb

Opnunartími um páska hjá Minjasafni Reykjavíkur | 27.03.2012

Með því að smella á titil þessarar fréttar má fræðast meira um opnunartíma Árbæjarsafns og Landnámssýningarinnar Reykjavík 871 +/-2.


husvernd_malthing

Að gera upp hús - Málþing | 12.03.2012

Húsverndarstofa stendur fyrir málþingi um viðhald og endurbætur eldri húsa. 16. mars kl. 14:00 í Árbæjarsafni Öll hús þarfnast viðgerðar og viðhalds. Að gera upp hús er fag og krefst ígrundunar.

Skoða alla viðburði