Landnámssýningin

Sýningin er glæsileg á að líta, fróðleg og nýstárleg og er gerð af tilfinningu fyrir rýminu og staðnum. Hér fara saman fjölbreytt miðlunartækni, gott aðgengi og framsetning í hæsta gæðaflokki.”

(úr áliti dómnefndar NODEM 2006, Nordic Digital Excellence in Museums)


Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.

Lesa nánar um sýninguna


Skoða muni sem er á sýningunni


Leiðsögn

Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólahópa á öllum skólastigum. Einnig er hægt að panta leiðsagnir fyrir hópa eftir samkomulagi. Panta þarf leiðsagnir með fyrirvara.

Panta þarf leiðsögn fyrir hópa í síma 411 6370 eða á tölvupóstfangið: landnam@reykjavik.is



Bæklingur á 5 tungumálum um sýninguna.
Með PDF sniði.

 

Landnámssýningin Reykjavík 871 +/-2

Aðalstræti 16

101 Reykjavík

landnam@reykjavik.is




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Kvoldvaka_safnanott

Safnanótt - 10. febrúar | 07.02.2012

Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.

Skoða alla viðburði