Haustmarkaður
Haustmarkaður verður haldinn á Árbæjarsafni sunnudaginn 29. ágúst. Fólk getur komið með grænmeti, sultu, handverk eða annað skemmtilegt og selt á markaðnum. Það kostar ekkert að vera með. Árbæjarsafn býður upp á aðstöðu á torginu en fólk verður sjálft að koma með borð, stóla, tjald eða það sem hverjum hentar. Það verður frítt inn á safnið þennan dag.
Vinsamlegast sendið annað hvort póst á minjasafn@reykjavík.is eða hringið í síma 4116320, ef þið hafið áhuga á að vera með og látið vita hvað vörur þið eruð með á boðstólum
Tilbaka