Sögugöngur á Menningarnótt 2010 - Hernámið og fyrirmyndarhús
Minjasafn Reykjavíkur býður gestum Menningarnætur í sögugöngur um miðbæinn.
Fyrri gangan hefst kl. 14 og fjallar hún um hernám Reykjavíkur fyrir 70 árum síðan. Lagt verður af stað frá Grófarhúsinu kl. 14 og tekur gangan ca. 40 mín.
Síðari gangan hefst kl. 15 og í henni verður fjallað um fyrirmyndarhús í Þingholtunum. Lagt verður af stað frá Laugavegi 6 og tekur gangan ca. 1 klukkustund.
Tilbaka