Verslunarmannahelgin 31. júlí-2. ágúst

Verslunarmannahelgin verður með líku sniði og undanfarin ár á Árbæjarsafni. Áhersla verður lögð á barnamenningu og leiki. Hér að neðan má sjá dagskrá helgarinnar.

Komdu_ad_leika1Laugardaginn 31. júlí verður boðið upp á ókeypis flugdrekanámskeið í Kornhúsinu kl. 13-16. Á námskeiðinu geta krakkar á aldrinum 8-12 ára lært að búa til eigin flugdreka og ef veður leyfir verður hægt að fljúga þeim á safnsvæðinu. Í Miðhúsi verðu prentari að störfum og einnig verður Sögubíllinn Æringi á safninu og býðst krökkum að hlusta á skemmtilegan sögulestur kl. 13 og 14 þennan dag. Í Árbæ verður húsfreyjan upptekinn við að strokka smjör.

 Á sunnudeginum 1. ágúst verður dagskrá í tengslum við leikfangasýninguna Komdu að leika. Á torginu verður farið í gamla hópleiki eins og þeir tíðkuðust á fyrri hluta síðustu aldar. Auk þess er fjölbreytt úrval af útileikföngum til staðar sem krökkum býðst að nota að vild. Á gamaldags róluvelli verður hægt að leika í rólunum, vegasaltinu eða í sandkassanum. Og ekki má gleyma hinum sívinsælu kassabílum. Á sýningunni Komdu að leika er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkunum er frjálst að leika sér með. Í Árbæ verður gestum og gangandi boðið upp á lummur og einnig verður teymt undir börnum eftir hádegi.

 Á mánudeginum 2. ágúst kemur landpósturinn í heimsókn á Árbæjarsafn. Gestum býðst að skrifa heimasætunni í Suðurgötu, húsfreyjunni í Árbæ og tómthúsfólki í Hábæ bréf og fylgjast með landpóstinum fara með póstinn milli bæja. Húsfreyjan í Árbænum býður póstinum, ferðalöngum og öðrum gestum upp á nýbakaðar lummur.
Heitt verður á könnunni í Dillonshúsi alla helgina.

Með kveðju frá starfsfólki Árbæjarsafns.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook

Árbæjarsafns

Opnunartími

1. september - 30. maí

Leiðsögn mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13:00. Þess fyrir utan eru safnhúsin lokuð. Tekið á mótum hópi eftir samkomulagi.

1. júní - 31. ágúst.

Opið frá kl. 10-17

Reykjavík 871 +/-2

Sýningin Reykjavík 871 er opin alla daga frá 10-17.

Reykjavík 871±2
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
Sími:411 6370

FACEBOOK

Minjasafn Reykjavíkur er nú búið að opna sína eigin Facebook síðu.

Facebook-breitt

Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
grar fotur fotur