Ísland í síðari heimsstyrjöld
Í ár eru liðin 70 ár frá því að breskur her steig á land í Reykjavík og Ísland dróst inn í hringiðu heimsviðburða, en 10. maí árið 1940 hernámu Bretar Ísland og rúmu ári síðar tóku Bandaríkjamenn við hervernd á landinu. Koma herliðsins hafði í för með sér gífurlegar breytingar á íslensku samfélagi, ekki síst í Reykjavík.
Herliðið stóð fyrir ýmsum framkvæmdum og fengu margir Íslendingar vinnu við mannvirkjagerð og ýmsa þjónustu. Þá dró úr atvinnuleysi sem hafði ríkt um langan tíma og efnahagur Íslands vænkaðist verulega. Í ljósi þessara miklu samfélagsbreytinga hefur stundum verið talað um heimsstyrjöldina síðari sem „blessað stríðið“.
1. júní s.l. var opnuð á Árbæjarsafni sýning um stríðsárin á Íslandi og ýmsar þær breytingar sem áttu sér stað á þeim tíma.
Sunnudaginn 25. júlí verður boðið upp á sérstakar leiðsagnir um sýninguna klukkan 13.00 og 15.00.
Leiðsögumaður er Sigurlaugur Ingólfsson, sagnfræðingur.
Tilbaka