Fegrunarnefnd Reykjavíkur
Á afmæli Reykjavíkur 18. ágúst, eru árlega veittar viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum og fyrir fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir. Skipulagsráð Reykjavíkurborgar veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópi. Það er von borgaryfirvalda að slíkar viðurkenningar virki hvetjandi fyrir húseigendur og forráðamenn stofnana og fyrirtækja í Reykjavík. Fallegar og vel hirtar lóðir eru til ánægju og yndisauka í borginni og með því að vekja athygli á þeim er hvatt til að húseigendur og forráðamenn fyrirtækja og stofnana fylgi fordæminu og leggi sitt af mörkum til fegrunar borgarinnar.
Viðurkenningar Fegrunarnefndar árið 2006:
Endurbætur á eldri húsum:
Klapparstígur 11
Húsið Klapparstígur 11 setur mikinn svip sinn á umhverfi sitt þar sem það stendur á horni Klapparstígs og Lindargötu og er gott dæmi um þá húsagerð sem þróaðist í Reykjavík á lokaskeiði timburhúsabyggðar í borginni. Endurbætur sem gerðar hafa verið á húsinu á undanförnum árum miða að því að færa það að upphaflegu útliti.
Hagamelur 12
Þetta er eitt af hinum glæsilegu íbúðarhúsum sem finna má í hverfunum sem byggð voru eftir seinni heimsstyrjöld og gott dæmi um sambýlishús frá þeim tíma. Húsið hefur nú verið endursteinað á vandaðan hátt og ekki hróflað við sérkennum þess.
Reynimelur 35
Húsið ásamt bílskúr og garðvegg hefur nú verið endursteinað á afar vandaðan hátt og hafa megin einkenni hússins og heildarsvipur þess varðveist.
Viðurkenning fyrir lóðir fjölbýlishúsa:
Kóngsbakki 1-15. Fær viðurkenningu fyrir vel heppnað skipulag á leik- og dvalarsvæðum á fjölbýlishúsalóð.
Öldugrandi 1-9. Fær viðurkenningu fyrir snyrtilegan og stílhreinan frágang á fjölbýlishúsalóð.
Viðurkenning fyrir atvinnu- og stofnanalóðir:
Ellingsen, Fiskislóð 1. Fær viðurkenningu fyrir prýðilegan frágang á lóðinni sem er til fyrirmyndar á iðnaðarsvæði þar sem frágangi á lóðum er víða ábótavant
Vélaver, Krókhálsi 16. Fær viðurkenningu fyrir fallegan og eftirtektarverðan frágang á atvinnulóð