mynd

 

Reglulegt viðhald er besta og ódýrasta aðferðin til að varðveita hús

Það eykur verðgildi húsa ef þeim er haldið við af fagmennsku og upphaflegur stíll þeirra fær að njóta sín

 

Reynslan sýnir að yfirleitt er hægt að gera við og endurbæta gamalt hús án umfangsmikillar endurnýjunar og án þess að sérkenni hússins hverfi.

Húsverndarstofan er til húsa á Árbæjarsafni, neðst á safnsvæðinu

Kornhus

Sýningarskrár og bæklingar

Nýjasta útgáfan er efst á listanum:

Reykjavík 871±2: Margtyngdur bæklingur (stærð skjals 0,97MB)


Forsíða á margtyngdum bæklingi

Árbæjarsafn: Margtyngdur bæklingur (stærð skjals 0,5 MB)
Upplýsingabæklingur um Árbæjarsafn á 13 tungumálum, ensku, dönsku, frönsku, þýsku, víetnömsku, rússnesku, serbó-króatísku, japönsku, pólsku, spænsku, tælensku og íslensku.
(Reykjavík, 2006).



 

 

Reykjavík 871±2
Bæklingur á íslensku og ensku sem gefinn er út í tilefni samnefndrar sýningar sem opnaði í Aðalstræti 16 árið 2006.Reykjavík 2006.

Dagur í lífi Reykvíkinga: 6.áratugurinn
Sýningarbæklingur sem gefinn var út í tilefni sýningar á heimili frá 6.áratugnum sem sett var upp á Árbæjarsafni árið 2004.
Reykjavík 2004.

Saga Reykjavíkur: frá býli til borgar
Kynningarbæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Lækjargötu 4, Árbæjarsafni árið 2000.
Reykjavík 2000.

Living on the North Atlantic: lífið við sjóinn
Bæklingur á íslensku og ensku með sýningu sem safnið stóð fyrir ásamt fleiri í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu árið 2000.
Reykjavík 2000.

Saga byggingatækninnar: sýningarskrá
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns og Menntafélags byggingariðnaðarins í Kjöthúsi, Árbæjarsafni árið 2000.
Reykjavík 2000.

Íslandsbanki hinn eldri

Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Prófessorshúsinu frá Kleppi, Árbæjarsafni árið 1994.
Reykjavík, 1994.

Aðalstræti: saga byggðar
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Gallerí Borg 1992.
Reykjavík, 1992.

Hernámsfréttir: Reykjavík á stríðsárunum
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Prófessorshúsinu frá Kleppi, Árbæjarsafni árið 1990.
Reykjavík, 1990.

Unga fólkið og söfnin
Bæklingur á íslensku og dönsku með MIX- sýningu borgarminjasafnanna á Norðurlöndum.
Aalborg, 1995.

Reykjavík 1944. Fjölskyldan á lýðveldisári
Bæklingur gefinn út á íslensku með sýningu sem sett var upp í Kornhúsinu í Árbæjarsafni árið 1994. Á sýningunni var fylgt eftir fjölskyldu á lýðveldisári.
Reykjavík 1994.

Víkin og Viðey: fornleifar frá landnámi til siðaskipta í Reykjavík
Bæklingur á ensku og íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Nýhöfn 1992.
Reykjavík 1992.

Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Nýhöfn, 1992.
Reykjavík 1992.

"Það var svo geggjað": 1968-1972
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns í Prófessorshúsinu frá Kleppi, Árbæjarsafni árið 1992.
Reykjavík 1992.

Esjan og Dómkirkjan í verkum Jóns Helgasonar biskups

Bæklingur á íslensku gefinn út á Árbæjarsafni árið 1988.

Á hestsbaki: sýning frá Árbæjarsafni
Bæklingur á íslensku með farandsýningu Útnorðursafnsins sem var samstarf nokkurra menningarsögulegra safna á Íslandi, í Grænlandi og Færeyjum.
Reykjavík 1983.

Járnbrautin í Reykjavík: The Locomotives in Reykjavik
Hafnargerð í Reykjavík og járnbrautir á Íslandi.
Bæklingur gefinn út af Árbæjarsafni árið 1982.

Leikfangasýning í Árbæjarsafni
Bæklingur á íslensku með sýningu Árbæjarsafns 1979.
Reykjavík 1979.

Learning Embroidery
Bæklingur á ensku um sýningu úr textílsafni Minjasafns Reykjavíkur sem sett var upp í Suðurgötu 7 á Árbæjarsafni.
(ártal ekki skráð).




Senda Prenta Senda á Facebook
Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd