mynd

 

Reglulegt viðhald er besta og ódýrasta aðferðin til að varðveita hús

Það eykur verðgildi húsa ef þeim er haldið við af fagmennsku og upphaflegur stíll þeirra fær að njóta sín

 

Reynslan sýnir að yfirleitt er hægt að gera við og endurbæta gamalt hús án umfangsmikillar endurnýjunar og án þess að sérkenni hússins hverfi.

Húsverndarstofan er til húsa á Árbæjarsafni, neðst á safnsvæðinu

Kornhus

Bækur

 

Söguspegill


Söguspegill. Afmælisrit Árbæjarsafns
Árbæjarsafn og starfsemi þess á árunum 1957-1992 er viðfangsefni þessarar bókar. Tuttugu og tveir höfundar rita greinar um fjölþætt starfsemi safnsins og ómetanlega fjársjóði, muni og hús sem því tilheyra. Hátt á annað hundrað myndir prýða bókina.
Ritstjóri: Helgi M. Sigurðsson. Reykjavík, 1992.
Bókin er gefin út í samvinnu við Hið íslenzka bókmenntafélag.
Verð Kr. 500 -



Leiðsögubókin
Árbæjarsafn: leiðsögubók
Ítarleg leiðsögubók um safnsvæðið á Árbæjarsafni á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, dönsku og þýsku. Þessi bók er prýdd fjölda litmynda.
Höfundur: Helgi M. Sigurðsson.
Reykjavík, 1995. Önnur útgáfa kom út 1998.
Verð Kr. 500 -



Frumleg hreinskilni
Frumleg hreinskilni: Þórbergur Þórðarson og menningin á mölinni í upphafi aldar.
Um ár Þórbergs Þórðarsonar í tengslum við Unuhús (1912-1925) og menningarlífið í Reykjavík í byrjun 20. aldar.
Höfundur: Helgi M. Sigurðsson.
Gefin út í samvinnu við Hið íslenzka bókmenntafélag.
Reykjavík, 1992.
Verð Kr. 500 -


Reykjavík 871
Reykjavík 871±2
Sýningarskrá sem gefin var út í tilefni opnunar sýningarinnar Reykjavík 871±2 árið 2006.
Höfundar: Orri Vésteinsson, Helgi Þorláksson og Árni Einarsson.
Ritstjóri: Bryndís Sverrisdóttir.
Verð Kr. 1890 -


 

 

Öskjuhlíð
Öskjuhlíð: náttúra og saga
Göngubók með skýringum, kortum og myndum.
Helgi M. Sigurðsson og Yngvi M. Loftsson.
Bókin er gefin út í samvinnu við Borgarskipulag Reykjavíkur.
Reykjavík, 1993.
Verð Kr. 1250 -



Gullkista þvottakvenna
Gullkista þvottakvenna:
heimildasafn og endurminningar Huldu H. Pétursdóttur um þvottalaugarnar í Laugardal.
Um þvottalaugarnar í Laugardal.
Ritstjóri: Unnur Karlsdóttir.
Bókin er gefin út í samvinnu við Hið íslenska bókmenntafélag.
Reykjavík, 1997.
Kr. 1250 -

 


Saga Reykjavíkur

Saga Reykjavíkur: frá býli til borgar.
Sýningarskrá  á íslensku með sýningu Árbæjarsafns um sögu Reykjavíkur sem opnuð var í Lækjargötu 4 á Árbæjarsafni árið 2000. Bæði til á ensku og íslensku.
Reykjavík, 2000.
Verð Kr. 500 -





Senda Prenta Senda á Facebook
Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd