mynd

Minjastaðir

Meðal minjastaða í Reykjavík þar sem sjá má menningarlandslag má nefna Laugarnes, Kvosina í miðbæ Reykjavíkur, Þvottalaugarnar í Laugardal, Skildinganes við Skerjafjörð, eyjarnar á Kollafriði, Elliðárdal, Þingnes við Elliðárvatn og jarðinar í austurhluta borgarinnar, Breiðholt, Keldur, Grafarholt og Reynisvatn.

Senda fyrirspurn

Þú getur sent fyrirspurn til Húsadeildar Minjasafns Reykjavíkur til að fá nánari upplýsingar um hús í Reykjavík.
Senda fyrirspurn

Roðskór fyrir barn

Safngripir

Minjavarsla
Varðveisludeild Minjasafns Reykjavíkur varðveitir muni sem varpa ljósi á lifnaðarhætti og daglegt líf í borginni. Unnið er að söfnun gripa eftir söfnunarstefnu safnsins, en söfnunarsvæði þess er Reykjavík og þau nágrannasveitarfélög sem ekki hafa eigin minjasöfn. Allir gripir sem safninu áskotnast eru skráðir í menningasögulega gagnagrunninn Sarp.

Við tökum við gripum sem falla að söfnunarstefnu safnsins og veitum upplýsingar um safngripi. Minjasafn Reykjavíkur greiðir ekki fyrir gripi.




Senda Prenta Senda á Facebook
Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd