mynd

Minjastaðir

Meðal minjastaða í Reykjavík þar sem sjá má menningarlandslag má nefna Laugarnes, Kvosina í miðbæ Reykjavíkur, Þvottalaugarnar í Laugardal, Skildinganes við Skerjafjörð, eyjarnar á Kollafriði, Elliðárdal, Þingnes við Elliðárvatn og jarðinar í austurhluta borgarinnar, Breiðholt, Keldur, Grafarholt og Reynisvatn.

Senda fyrirspurn

Þú getur sent fyrirspurn til Húsadeildar Minjasafns Reykjavíkur til að fá nánari upplýsingar um hús í Reykjavík.
Senda fyrirspurn

Roðskór fyrir barn

Húsvernd í Reykjavík

Ein síða úr húsaskráMinjasafn Reykjavíkur sinnir húsvernd á margvíslegan hátt. Í safninu eru varðveitt hús sem talin eru hafa sögulegt og listrænt gildi og flutt hafa verið á safnsvæðið í Árbæ. Safnið sinnir rannsóknum á byggingararfi í borginni, bæði einstaka húsum og hverfum og heldur húsaskrá Reykjavíkur þar sem er að finna upplýsingar um hús í Reykjavík. Niðurstöður rannsókna safnsins eru birtar í ritum um byggingarsögu og húsakönnunum sem gefnar eru út í skýrsluröð safnsins. Borgarminjavörður veitir umsagnir um breytingar á eldri húsum sem sótt er um til bygginga- og skipulagsnefndar Reykjavíkur.

 

Húsaskrá
Húsaskrá er gagnagrunnur yfir hús í Reykjavík. Í skránni felast tæmandi upplýsingar um mat á varðveislu viðkomandi húss. Megintilgangurinn með því að búa til fullkomna skráningu á öllum húsum borgarinnar er að gefa byggingararfi okkar aukið vægi í menningarlegu samhengi. Hluti af húsaskránni er aðgengilegur á vefnum sem hluti af útgefnum skýrslum Minjasafnsins.

Nánari upplýsingar um húsaskrá

 

Húsakönnun
Húsadeild Minjasafns Reykjavíkur sinnir rannsóknum á byggingarsögu Reykjavíkur og gerir úttektir á einstökum húsum sem og afmörkuðum borgarhlutum fyrir nefndir borgarinnar, borgarskipulag Reykjavíkur og einstaklinga. Á hverju ári gefur Húsadeild út nokkrar skýrslur en í þeim má finna upplýsingar um sögu húsa á viðkomandi svæði og grunnupplýsingar um varðveislumat einstakra húsa. Útprentaðar skýrslur eru seldar á safninu. Nýjustu húsakannanir Minjasafns Reykjavíkur eru líka aðgengilegar á vefnum í pdf formi. Skýrslurnar eru enn fremur tengdar borgarvefsjá undir leitarflokknum "Saga húsa".

Skoða húsakannanir

 

Húsverndarkort
Í þemaheftinu Húsvernd sem fylgdi Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 er varðveislugildi húsa metið og mörkuð stefna um verndun byggðar í eldri hverfum borgarinnar. Varðveislugildið er auðkennt á húsverndarkortum þar sem borginni er skipt í tvö svæði austurbæ og vesturbæ. Kortin eru unnin af Borgarskipulagi með jöfnu millibili og uppfærð reglulega á vefsíðu þeirra.


pdf skjalSkoða húsverndarkort

 

Lög og reglugerðir varðandi húsvernd
Samkvæmt lögum og verklagsreglum sem settar hafa verið um samskipti minjavörslunnar og skipulagsyfirvalda í Reykjavík, heyrir minjavarsla undir borgarminjavörð, skipulagsvinna er á hendi Borgarskipulags og byggingarfulltrúi á að framfylgja ákvæðum um tilkynningarskyldu vegna húsa sem byggð eru fyrir árið 1918. Húsafriðunarnefnd ríkisins ber að hafa samráð við borgarminjavörð þegar fjallað er um hús í Reykjavík.

 

Húsverndarsjóður Reykjavíkur
Árið 1987 var Húsverndarsjóður Reykjavíkur stofnaður til að veita lán til endurbyggingar gamalla húsa með varðveislugildi. Árið 1997 var honum breytt í styrktarsjóð. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum s.s. girðingum í Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hefur af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og í samræmi við sjónarmið minjavörslu. Árlega er auglýst eftir umsóknum í sjóðinn
Umsóknareyðublöð má fá á Árbæjarsafni og Borgarskipulagi Reykjavíkur. Þeim skal skila, vandlega útfylltum, innan tilskilins frests til Borgarskipulags, Borgartúni 3, 104 Reykjavík.


pdf skjalSjá reglur sjóðsins (stærð skjals 15,6 Kb).

 

Fegrunarnefnd Reykjavíkur
Á afmæli Reykjavíkur 18. ágúst, eru árlega veittar viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum og fyrir fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir. Skipulagsráð Reykjavíkurborgar veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópi.


Nánar um Fegrunarnefnd Reykjavíkur

 

Sýning um byggingartækni á Árbæjarsafni
Árið 2006 opnaði sýningin Húsagerð höfuðstaðar 1840–1940 - Saga byggingartækninnar. Á þessarri grunnsýningu safnsins er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni í Reykjavík á tímabilinu 1840–1940.


Skoða nánar Húsagerð höfuðstaðar 1840-1940



Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd