Landnámssýningin Reykjavík 871±2
Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.
Lesa nánar um sýninguna
Leiðsögn
Við bjóðum upp á reglulega leiðsögn um sýninguna á íslensku, ensku og norsku. Einnig er hægt að sérpanta leiðsagnir fyrir hópa. Panta þarf leiðsögn fyrir skólahópa.
Nánar um leiðsögn
Nánar um safnfræðslu
Móttaka hópa utan opnunartíma

Verslun
Lítil minjagripa- og gjafavöruverslun er í anddyri sýningarinnar. Þar eru til sölu ýmsir nýstárlegir minjagripir og önnur sérhönnuð gjafavara. Verslunin er opin á opnunartíma sýningarinnar.
Skoða úrval minjagripa