mynd

Aðgangseyrir

Fullorðnir: 600 kr.
Börn til 18 ára: ókeypis.
Eldri borgarar: ókeypis.
Öryrkjar: ókeypis.
Aðgangur ókeypis á föstudögum yfir sumarið.
Hópafsláttur: 10 eða fleiri kr. 300 á mann.

Opnunartími

Opið alla daga 1. júní til 1.september frá kl.10- 17.

Yfir vetrartímann eru fastar leiðsagnir um Árbæjarsafn alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 13-14. Allir velkomnir.

Safnfræðsla hjá Minjasafni Reykjavíkur

Markmið safnfræðslunnar er að efla söguvitund, skilning og víðsýni og auka þekkkingu á sögu Reykjavíkur. Markmiðið er að nemendur og gestir fái tækifæri til að skynja söguna og vera virkir þátttakendur í heimsóknum og hafi af þeim ánægju.

LeikskólabörnÍ Árbæjarsafni er lögð áhersla á að þjónusta skólum og skólafólki. Þar er margt sniðið að þörfum skólanna, enda tekur safnið við kennurum og nemendum eftir samkomulagi þeim að kostnaðarlausu.

Panta þarf heimsóknir með fyrirvara. Vefnetfang Árbæjarsafns er minjasafn@reykjavik.is og sími 411 6300. Netfang Landnámssýningarinnar í Aðalstræti er landnam@reykjavik.is og sími 411 6370. Tekiðer á móti einum bekk í einu.

Æskilegt er að skipta stórum bekkjum því húsin eru þröng. Nauðsynlegt er að nemendur séu vel klæddir og skóaðir því safnsvæðið er stórt.

Komdu að leika - miðast við elsta árgang leikskóla og yngstu skólastig grunnskóla

Gagnvirk sýning þar sem nemendur geta fræðst um leiki og leikföng barna á 20. öld.


Landnám Íslands. Miðast við 5. og 6. bekk grunnskóla

Nemendum sem eru að læra um landnámið gefst kostur á að heimsækja Landnámssýninguna í Aðalstræti og fræðast um líf landnema í Reykjavík. Í forgrunni sýningarinnar er rúst skála frá 10. öld auk mannvistaleifa frá 9. öld. Sýningin nýtir sér nýjustu tækni til að glæða viðfangsefinu líf og hefur hún hlotið mikið lof fyrir gagnvirka margmiðlun.

 

Landám Íslands og fornleifar - miðast við framhaldsskóla

Framhaldsskólunum býðst að heimsækja landnámssýninguna í Aðalstræti. Einkum þeim nemendum sem eru að læra um landnám Íslands.

Sveitin í gamla daga - safnfræðsla sniðin að þörfum 3. og 4. bekkjar


Þá er farið með börnin í gamla býlið Árbæ og þar fjallað um lífið í gamla bændasamfélaginu, sjálfsþurftabúskap, matargerð, tóvinnu og aðbúnað barna. Bærinn er skoðaður; baðstofa, hlóðaeldhús og fjós. Þá eru nemendur hvattir til að setja sig í spor forfeðranna og þau velta fyrir sér hvernig það var að búa í torfbæ án rafmagns og nútímaþæginda. Þetta verkefni er ætlað 3. og 4. bekk og æskilegt er að tengja heimsóknina við námsefnið Ísland áður fyrr.

Gestir fá leiðsögnSenn koma jólin – miðast við 5 ára nemendur leikskóla og yngsta árgang grunnskóla


Fyrir leikskóla er boðið upp á sérstaka jólasýningu sem ber yfirheitið: Senn koma jólin. Þá er fjallað um lífið í gamla daga svipað og í verkefninu Sveitin í gamla daga nema áherslan er á jólaundirbúning og jólahald. Farið er með börnin í gamla býlið Árbæ og torfkirkju safnsins. Þetta verkefni er sérstaklega ætlað 5 ára gömlum nemendum í leikskólum og yngsta árgangi grunnskóla. Byrjað er að taka við pöntunum 1. október og eru kennarar hvattir til að sækja um tímalega vegna mikillar ásóknar.

Einnig býðst leikskólum og grunnskólum að heimsækja safnið á Þorranum. Þar er áherslan lögð á matarræði Íslendinga áður fyrr, með sérstaka áherslu á hinn svo nefnda Þorramat.

freadslustofa3Húsagerð og byggingatækni - miðast við framhaldsskóla

Árbæjarsafn býður framhaldsskólunum að skoða Fræðslustofu um viðhald og viðgerð eldri húsa. Sýningin miðast við tímabilið 1840 til 1940, allt frá svo nefndum steinbæjum til steinsteypunar. Raunverulegir bútar úr húsum er notaðir til að fræða nemendur um handverk fyrri ára.

Einnig geta safnkennarar komið til móts við sérþarfir kennara.



Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd