Lifað og leikið

Húsið Þingholtsstræti 9 var reist árið 1846 og mun hafa verið smíðað úr timbri sem gekk af við byggingu Menntaskólans í Reykjavík það sama ár. Snikkarinn Helgi Jónsson byggði húsið og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni. Synir hans, Jónas og Helgi, voru áberandi í tónlistarlífi Reykjavíkur og stofnuðu meðal annars Söngfélagið Hörpuna og Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur.
Í þessu litla húsi voru einnig haldin píuböll og var þá oft glatt á hjalla. Dansleikir voru helstu skemmtanir bæjarbúa á þessum tíma og hér kynnumst við ekki einungis píuböllum heldur einnig höfðingjaböllum og handverksmannaböllum, grímuböllum, broddaböllum og skólaböllum.
Húsið stóð nær óbreytt fram yfir miðja 20. öld en þá var því gerbreytt bæði að utan og innan. Árið 1969 var það flutt í Árbæjarsafn.