mynd

Aðgangseyrir

Fullorðnir: 600 kr.
Börn til 18 ára: ókeypis.
Eldri borgarar: ókeypis.
Öryrkjar: ókeypis.
Aðgangur ókeypis á föstudögum yfir sumarið.
Hópafsláttur: 10 eða fleiri kr. 300 á mann.

Opnunartími

Opið alla daga 1. júní til 1.september frá kl.10- 17.

Yfir vetrartímann eru fastar leiðsagnir um Árbæjarsafn alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 13-14. Allir velkomnir.



Í húsi Krists og kappleikja

I_husi_Krists_litil
Á sýningunni Í húsi Krists og kappleikja er gerð grein fyrir hinum tveimur ólíku köflum í sögu hússins. Fyrstu 30 árin var það kaþólskt guðshús en árið 1929 þegar reist hafði verið ný kirkja var ákveðið að Íþróttafélag Reykjavíkur fengi húsið að gjöf og starfaði það þar næstu 70 árin.


Komdu að leika

bangsar_i_bil_litil
Sýningin Komdu að leika fjallar um leiki og leikföng barna í Reykjavík á 20. öld. Varpað er ljósi á fjölbreytileika og þróun leikfanga og hvernig leikir endurspegla samfélagið á hverjum tíma.


Ull í fat- íslensk tóvinna fyrr og nú

Ull_i_fat-litill
Sýningin Ull í fat- íslensk tóvinna fyrr og nú var opnuð í Líknarhúsinu í Árbæjarsafni 8. júní Sýningin er samvinnuverkefni Minjasafns Reykjavíkur og Heimilisiðnaðarfélags Íslands.


Þjóðbúningasýning

faldbuningur-litill
Sýning um þjóðbúninga kvenna á Íslandi verður opnuð í safnhúsinu Líkn þann 6. júní 2010. Á sýningunni má sjá búninga allt frá faldbúningi, sem tíðkaðist á 18. öld, til þjóðbúninga nútímans en markmið sýningarinnar er að veita gestum og gangandi fræðslu um helstu gerðir íslensku þjóðbúninganna.


Húsagerð höfuðstaðar 1840–1940

Byggingartæknisýning
Á sýningunni er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni í Reykjavík á tímabilinu 1840–1940. Sýningunni er skipt upp í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum eru tekin fyrir hlaðin steinhús, í öðrum hlutanum er fjallað um timburhús en þriðji hlutinn er tími steinsteypunnar.


Bráðum koma blessuð jólin

Jólasýning
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Þar má fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga.


Minningar úr húsi

Frá
Á efri hæð í Líknarhúsinu er til sýnis hluti af búslóð sem var í húsinu Laufásvegi 43. Búslóð var tekin niður árið 1999 og gefur innsýn í heimili reykvískra borgara á fyrri hluta 20. aldar. Heimilið var einstakt vegna þess að sama fjölskyldan bjó í húsinu í tæpa átta áratugi. Húsinu hafði lítið verið breytt í tímans rás og fyrirkomulag, húsbúnaður og innréttingar með svipuðu sniði hjá báðum kynslóðunum sem þar bjuggu.


Litla bílaverkstæðið

Bifreiðaverkstæðið
Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns og Bíliðnafélagsins/Félags blikksmiða. Sýningin var sett upp fyrri hluta ársins 2000 og er þar fjallað um helstu greinar bíliðna, bifvélavirkjun, bílasmíði og bílamálun.


Lifað og leikið

Lifað
Sýning í safnhúsinu Þingholtsstræti 9. Snikkarinn Helgi Jónsson reisti húsið árið 1846 og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni. Synir hans, Jónas og Helgi, voru áberandi í tónlistarlífi Reykjavíkur.


Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar

Mynd
Sýningin er grunnsýning safnsins, ætlað að kynna yfirlit yfir sögu Reykjavíkur frá upphafi og fram á 20. öld.


Listmunahorn

Svipmynd
Listmunahornið er innaf Krambúðinni í Lækjargötu 4. Þar eru settar upp sýningar á íslensku handverki og listiðnaði með reglulegu millibili.
Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd