mynd

 

Reglulegt viðhald er besta og ódýrasta aðferðin til að varðveita hús

Það eykur verðgildi húsa ef þeim er haldið við af fagmennsku og upphaflegur stíll þeirra fær að njóta sín

 

Reynslan sýnir að yfirleitt er hægt að gera við og endurbæta gamalt hús án umfangsmikillar endurnýjunar og án þess að sérkenni hússins hverfi.

Húsverndarstofan er til húsa á Árbæjarsafni, neðst á safnsvæðinu

Kornhus

Saga Minjasafns Reykjavíkur

Gestir á Árbæjarsafni í kringum 1960Heimildir herma að þar sem Kvosin er í Reykjavík hafi fyrstu landnámsmennirnir, Hallveig Fróðadóttir og maður hennar Ingólfur Arnarson, sest að. Reykjavík var lengst af sveitabær, kirkjujörð og höfuðból. Um miðja 18. öld myndaðist þar þorp í tengslum við Innréttingar Skúla Magnússonar landfógeta og kaupstaðarréttindi fékk Reykjavík árið 1786. Á 19. öld efldist Reykjavík sem kaupmanna- og embættismannabær, auk þess sem handverksmönnum og tómthúsmönnum fjölgaði. Við upphaf 20. aldar hélt nútíminn innreið sína í bæinn með umbyltingu á sviði atvinnumála og lífshátta.


Minjasafn verður til
Árbær um 1950Um miðja 20. öld tóku æ fleiri bæjarbúar að leiða hugann að því með nokkurri eftirsjá að "hin gamla Reykjavík" væri að hverfa og mundi ekki koma aftur. Hreyfing komst fyrst á málefni minjasafns árið 1942 þegar bæjarstjórn Reykjavíkur barst skrifleg áskorun um stofnun þess. Áskoruninni var vel tekið og henni vísað til umsagnar Reykvíkingafélagsins, sem var einskonar átthagafélag höfuðstaðarins. Um þetta leyti hófst söfnun á gögnum um sögu bæjarins og varð það grundvöllur að skjalasafni þess.

Næst bar það til tíðinda að árið 1945 keypti Reykjavíkurbær 118 málverk og teikningar eftir Jón Helgason biskup. Árið 1947 samþykkti bæjarstjórn Reykjavíkur síðan að stofna Bæjarsafn Reykjavíkur og efna til bæjarsýningar. Reykjavíkursýningin var haldin í hinu nýbyggða húsi Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu árið 1949. Af því tilefni var efnt til fyrsta söfnunarátaksins á reykvískum forngripum.

Þetta varð til þess að árið 1954 var Skjala- og minjasafn Reykjavíkur formlega stofnað. Því var fengið húsnæði að Skúlatúni 2. Lárus Sigurbjörnsson var ráðinn forstöðumaður þess og hóf hann söfnun forngripa af margvíslegu tagi.

Upphaf Árbæjarsafns
Nú varð atburðarásin hröð. Gamalt býli, Árbær, sem lengi hafði verið áningarstaður fólks á leið til og frá Reykjavík, var komið í eyði og bæjarhúsin illa farin vegna skemmdarverka og veðra. Árið 1957 samþykkti bæjarráð að þar skyldi búinn til almenningsgarður og komið upp safni gamalla húsa, sem hefðu menningarsögulegt gildi. Safnið var opnað strax þá um haustið.

DillonsFyrsta verkefni Árbæjarsafns var að endurbyggja Árbæinn. Fyrsta flutningshúsið, Smiðshús, var flutt þangað árið 1960. Næsta ár, 1961, kom Dillonshús, Suðurgata 2, og þannig koll af kolli.

 

Sameining Minjasafns og Árbæjarsafns
Árið 1968 voru Minjasafn Reykjavíkur og Árbæjarsafn sameinuð undir nafni hins síðarnefnda. Þá var einnig samþykkt í borgarstjórn að koma á fót embætti borgarminjavarðar og var fyrst ráðið í það starf 1974. Fyrsti borgarminjavörðurinn var Nanna Hermansson (1974-1984), við af henni tók Ragnheiður Þórarinsdóttir (1984-1989), þriðja í röðinni var Margrét Hallgrímsdóttir (1989-2000) og núverandi borgarminjavörður er Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2000-).

Þróun safnsins
Þegar Árbæjarsafn var stofnað, 1957, var það spölkorn fyrir utan byggðina í Reykjavík. Síðan hefur borgin stækkað umtalsvert og nær nú langt út fyrir safnið. En þrátt fyrir bæði Höfðabakkabraut í austri og íbúðabyggð í norðri er landrými ennþá allnokkuð. Einnig nýtur safnið góðs af nálægðinni við Elliðaárdalinn, því gróskusama og víðáttumikla útivistarsvæði. Raunar er aðdáunarvert hve framsýnir frumkvöðlar Árbæjarsafns hafa reynst í flestu tilliti. Þróunarmöguleikar safnsins virðast óþrjótandi um langa framtíð.

Landnámssýningin Reykjavík 871±2
Í maí árið 2006 opnaði Landnámssýningin Reykjavík 871±2 í Aðalstræti 16.  Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Sýningin er í umsjón Minjasafns Reykjavíkur.

 

 

 

 

 


Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd