Eldri fréttir


Byggingartæknisýning

Styrkir úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar | 17.01.2012

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.


Húsverndarstofan lokuð fram til áramóta | 20.12.2011

Húsverndarstofan á Árbæjarsafni verður lokuð dagana 21. desember og 28. desember. Hún verður svo á sínum stað eftir áramót. Húsaverndarstofan vill þakka öllum sem hafa komið í heimsókn á liðnu ári.


Jólasýning Árbæjarsafns | 14.12.2011

Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Að þessu sinni verður dagskrá sunnudagana 4., 11. og 18 desember frá kl. 13 til 17.


Hofdi 18.08.2011

Fegrunarviðurkenningar 2011 | 13.09.2011

Nefnd sú, er skipuð var af Skipulagsráði Reykjavíkur til að gera tilnefningar um viðurkenningar vegna endurbóta á eldri húsum, hefur lokið störfum. Lagt er til að í ár hljóti þrjú hús viðurkenningu; Garðastræti 44, Laufásvegur 10 og Þingholtsstræti 17.


Vetrardagskrá Árbæjarsafns | 01.09.2011

Frá og með 1. september tekur vetrardagskrá Árbæjarsafns við. Þá er boðið upp á leiðsagnir þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Safnsvæðið er annars opið, en safnhúsin ekki. Tekið er á móti hópum (bæði skólahópum og ferðmannahópum) eftir samkomulagi. Hægt er að panta leiðsögn á minjasafn@reykjavik.is.


Buxur, vesti, brók og skó | 22.06.2011

Þann 5. júní síðastliðinn var opnuð ný sýning í Suðurgötu 7 þar sem heimagerð barnaföt eru í forgrunni.


Rabarbari til sölu í Krambúðinni

Rabarbari til sölu í Krambúðinni | 15.06.2011

Er ekki kominn tími til að sulta ? Nýupptekinn rabarbari til sölu í Krambúð safnsins. Kílóið á 100 kr.


tjoddansar

Sumarstarfið hefst á Árbæjarsafni | 24.05.2011

Sumardagskrá Árbæjarsafns tekur gildi n.k. miðvikudag, 1. júní.

Viðburðir


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.


jolasyning

Bráðum koma blessuð jólin ... | 15.11.2011

Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Að þessu sinni verður dagskrá sunnudagana 4., 11. og 18 desember frá kl. 13 til 17.

Skoða alla viðburði