Leiðarljós Minjasafns Reykjavíkur
Minjasafn Reykjavíkur safnar, varðveitir og rannsakar menningarminjar í Reykjavík og miðlar þekkingu um sögu og lífskjör íbúa í Reykjavík frá upphafi byggðar til nútímans. Starf safnsins miðar að því að glæða áhuga, skilning og virðingu fyrir sögu Reykjavíkur og að tryggja að allir hafi aðgang að menningararfi höfuðborgarinnar.