mynd

 

Reglulegt viðhald er besta og ódýrasta aðferðin til að varðveita hús

Það eykur verðgildi húsa ef þeim er haldið við af fagmennsku og upphaflegur stíll þeirra fær að njóta sín

 

Reynslan sýnir að yfirleitt er hægt að gera við og endurbæta gamalt hús án umfangsmikillar endurnýjunar og án þess að sérkenni hússins hverfi.

Húsverndarstofan er til húsa á Árbæjarsafni, neðst á safnsvæðinu

Kornhus

Starfsemi Minjasafns Reykjavíkur

Borgarminjavörður veitir Minjasafni Reykjavíkur forstöðu og fer með minjavörslu í Reykjavík en í því felst að hafa umsjón með varðveislu menningarminja innan borgarmarkanna og eftirlit með þeim. Til menningarminja teljast munir, fornleifar, gamlar byggingar og menningarlandslag og aðrar minjar um búsetu manna. Í þjóðminjalögum eru ákvæði um hvernig háttað skal vörslu menningarminja og starfar borgarminjavörður að minjavörslu samkvæmt þeim.

Bókasafn Minjasafns Reykjavíkur er handbókasafn. Þar eru rit um sögu Reykjavíkur, sýningar- og fræðslumál á söfnum, húsvernd og húsarannsóknir, fornleifarannsóknir og forvörslu.

Fornleifadeild hefur umsjón með fornleifarannsóknum og fornleifaskráningu á minjastöðum í Reykjavík og á Kjalarnesi. Deildin sinnir eftirliti vegna framkvæmda á minjastöðum sem og gerð umhverfismats samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda.

Húsadeild sinnir rannsóknum á byggingarsögu Reykjavíkur og vinnur að gerð húsakannana vegna deiliskipulagsgerðar í eldri hverfum borgarinnar samkvæmt skipulagslögum. Deildin heldur utan um Húsaskrá Reykjavíkur sem er gagnagrunnur yfir hús í Reykjavík. Borgarminjavörður gefur umsagnir varðandi breytingar, flutning og niðurrif á húsum til nefnda Reykjavíkurborgar og Húsafriðunarnefndar. Samkvæmt þjóðminjalögum hefur borgarminjavörður eftirlit með friðuðum húsum í Reykjavík og húsum sem byggð eru fyrir árið 1918.

Miðlunardeild hefur umsjón með sýningum í safninu, bæði sýningum í safnhúsum og einnig sérsýningum. Deildin sinnir einnig öllu því sem lýtur að fræðslu og móttöku gesta. Meðal fastra liða í fræðslustarfi safnsins eru ýmsir listviðburðir og sýningar á gömlu handverki í safnhúsum. Í desember er jólasýning og jóladagskrá.

Myndasafn Minjasafns Reykjavíkur hefur verið afhent Ljósmyndasafni Reykjavíkur til varðveislu og hefur Ljósmyndasafnið tekið við þjónustu mynda úr safninu. Ljósmyndasafnið veitir upplýsingar um ljósmyndir úr Reykjavík og pantanir á myndum og verð fyrir þá þjónustu.

Heimasíða Ljósmyndasafns: Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ráðsmaður hefur umsjón með safnsvæðinu á Árbæjarsafni og öryggismálum safnsins. Ráðsmaður er gestum til aðstoðar í tengslum við athafnir í kirkju og samkomur í Kornhúsi og Dillonshúsi utan venjulegs opnunartíma safnsins.

Skrifstofa Minjasafns Reykjavíkur er til húsa í Prófessorshúsinu frá Kleppi, nyrst á safnsvæði Árbæjarsafns. Þar er almenn afgreiðsla safnsins. Starfsmenn á skrifstofu veita upplýsingar um leigu á safnkirkju, Kornhúsi og Dillonshúsi.

Trésmíðaverkstæði er rekið í safninu. Þar starfa tveir smiðir auk ráðsmanns og sinna þeir viðhaldi og viðgerðum á safnhúsum.



Varðveisludeild Minjasafns Reykjavíkur varðveitir muni sem varpa ljósi á lifnaðarhætti og daglegt líf í borginni. Unnið er að söfnun gripa eftir söfnunarstefnu safnsins, en söfnunarsvæði þess er Reykjavík og þau nágrannasveitarfélög sem ekki hafa eigin minjasöfn. Tekið er við gripum sem falla að söfnunarstefnu safnsins.




Senda Prenta Senda á Facebook
Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd